fimmtudagur, nóvember 03, 2011

Hvenær má vænta þess að Bókatíðindi 2011 berist í hús? Óvanalega mikil jólatilhlökkun hér á bæ! Svo mikil að jólakaka var keypt í morgungöngutúrnum í gær - SH var ekki lítið spenntur en mátti ekki fá. Obbobb.

Annars bara kvef, kvef og kvef hér á bæ. Oj, pirrandi!

föstudagur, október 28, 2011

BJÖRK..
..í Hörpunni í kvöld. GET EKKI BEÐIÐ. Ég hef aldrei séð hana á tónleikum, eða næstum. Sá hana á náttúrutónleikunum í Laugardalnum sumarið 2008 - en ég tel það ekki með!

Hvernig væri að hún tæki eitt gamalt og gott, svona upp á fjörið.

mánudagur, október 17, 2011

Ég á í ástar/hatur sambandi við Woody Allen. Ég þoli ekki WA en dýrka þó samt þær þrjár myndir sem ég er búin að sjá eftir hann. BAH! Í ofanálag bý ég svo með Woody-ista. Svo þetta er flókið.

MiP ætla ég næst að sjá í bíó, helst í vikunni - ef amman og afinn geta passað.

(Ég hef líka alltaf verið pínu skotin í Owen Wilson!)

Annars er tríóið á H7 komið heim frá Spáni. Tvær vikur með ömmu og afa á Akureyri, föðursystrum og frændsystkinum. Það var stuð! Jafnvel myndir úr ferðalaginu síðar!

Svo eru bara 7 vikur eftir af fæðingar"orlofinu". Jæks! Hvernig getur það verið?

fimmtudagur, september 01, 2011

Jimmy McNulty..
..er nýja hetjan mín. Karakter-crush! Jæks! Ef þú ert ekki að horfa á The Wire þá mælist ég til þess að úr því verði bætt hið fyrsta!



McNulty spot on eins og vanalega. hah! McNutly er samt algjör asni on-the-side. Hann þarf að gera e-ð í því.

föstudagur, júlí 29, 2011

Ég á drög að svona sjö bloggum um lífið á H7 í júní og júlí. Úffpúff! Við erum komin í sæluna á Akureyri, ömmu og afaknús og góðan mat! Vei!